19.10.2007 | 10:19
2mánuðir liðnir frá erfiðasta dag lífs míns :.(
Sit hérna með tárin í augunum og hugsa um þennan erfiða dag 19 ágúst. Svo mikið sem mig langar að vita, en fæ örugglega aldrei nein svör. Kannski er það betra þannig en samt veit ég það heldur ekki. Eina sem ég veit alveg 100% er að ég vil fá litla bróðir aftur. Skil ekki afhverju hann var tekin svona fljótt frá okkur. Tilhugsunin að lifa lífinu án hans er bara óbærileg, allt svo tómt. Ég sit oft með símann minn í hendinni og hringi í númerið hans og vona svo að hann svari, en það gerist ekki Ég get ekki strokað út nafnið Himmi bró úr símanum mínum. Afhverju getum við ekki beðið guð eins fallega og hægt er að senda hann aftur til okkar. Ég er allavega búin að reyna svo mikið en ekkert breitist, ekkert gerist. Hellt að guð myndi hlusta á mann og hjálpa manni. Þetta er bara óbærilegt, og það erfiðasta sem ég hef upplifað.
Jæja ég veit ekki hvað ég á að skrifa meira í augnablikinu. Skrifa kannski meira á eftir þegar ég næ að jafna mig á þessum erfiðu hugsunum. Vil svo biðja ykkur að kveikja á kertum fyrir litla engilinn hann Himma. Það er linkur á kertsíðuna hans hérna við hliðiná.
Takk,takk
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
eitt svona til þín Solla mín vona að Himmanum okkar líði vel hjá guði.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 19.10.2007 kl. 11:58
Þetta var ferlega vondur dagur,sá versti hjá mörgum okkar. Ég segi eins og Heiður, vonandi líður honum vel hjá Guði. Elsku Himmi....
Ragnheiður , 19.10.2007 kl. 12:09
Solla mín, þú þekkir mig ekkert en mér finnst ég þekkja þig Ég trúi því að Himmi sé að sníglast í kring um ykkur öll. Og að hann sakni þess að geta ekki klúsað ykkur öll, þannig að þið verið vör við hann.
kidda, 19.10.2007 kl. 18:20
Knús til þín
Bryndís R (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 18:22
Takk fyrir alla hlíuna. Það er bara of erfitt að kveðja gullið okkar hann Himma, hann reyndi alltaf að láta mér líða vel og núna er allt svo tómt, mig vantar Himma til að gefa mér klús og hressa mig við bara eins og hann var vanur að gera. Datt aldrei í huga í hægt væri að sakna einhvers svona sárt og að finna svona svakalegan sársauka í hjartanu.
Solla, 19.10.2007 kl. 19:07
Klús. Mér finnst þetta ekkert smá krúttlegt orð
Bryndís R (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 19:43
Þetta orð hefur verið notað í fjölskyldunni alla tíð. Hann sagði þetta sjálfur þegar hann var lítill og hann vildi alltaf gefa mann klús. Hann sagðist líka vera úfinn þegar hann var reiður og það hefur líka verið notað.
Hann var svo skemmtilegt barn, erfiður stálpaður og unglingur en yndislegur ungur maður....
Ragnheiður , 19.10.2007 kl. 20:10
vona að þér líði betur í dag
Katrín Ósk Adamsdóttir, 20.10.2007 kl. 21:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.